|
Heilahristingur |
|
|
|
Í Borgarbókasafni í Kringlu er boðið upp á ókeypis heimanámsaðstoð alla mánudaga kl. 14:45-16:15.
Heimanámsaðstoðin er kölluð Heilahristingur og er áhersla lögð á að virkja nemendurna í námi og að hafa það skemmtilegt saman.
Sjálfboðaliðar frá Rauða krossinum taka á móti þeim nemendum sem hafa áhuga á að nýta sér aðstoðina.
Heilahristingur er í boði fyrir nemendur í 5.-10. bekk.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Heilahristings, www.heilahristingur.is. |
|
|
Starfsdagur |
|
|
|
Mánudaginn 23. janúar verður starfsdagur í skólanum.
Daginn nota kennarar til að ganga frá námsmati sem verður afhent nemendum föstudaginn 27. janúar.
Foreldraviðtöl verða síðan 31. janúar og verða foreldrar boðaðir með bréfi eða tölvupósti í viðtölin. |
|
Minningargjöf |
|
|
|
Í minningu Magneu hafa skólasystkini hennar úr Menntaskólanum á Akureyri ákveðið að færa Háteigsskóla að gjöf listaverk. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 4 |